Vestmannaeyjar stefna Vinnslustöðinni, fangavarðanám, kosningar og heilbrigðismál
Vestmannaeyjabær vill að Vinnslustöðin bæti að fullu tjón sem skip félagsins olli á neysluvatnslögn. Útgerðin vill aðeins borga hluta og ber siglingalög fyrir sig.
Dómsmálaráðherra harmar að pottur hafi verið brotinn við inntöku nemenda í fangavarðanám en segir að ákvörðunum verði ekki snúið úr þessu.
Þingkosningarnar verða í Bretlandi á morgun og ljóst þykir að þær verði sögulegar fyrir margra hluta sakir segir einn virtasti stjórnmálaspekingur Bretlands.
Efla á þjónustu barna- og unglingageðteymis á Norðurlandi með aukinni samvinnu heilbrigðisstofnana.
Lykilbandamaður Joe Bidens segir forsetann hafa efasemdir um framboð sitt eftir lélega frammistöðu í forsetakappræðunum í síðustu viku.
Ferðum sem endurgreiddar verða vegna heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar verður fjölgað úr þremur í fjórar á ári.