8. desember 2023
Land heldur áfram að rísa við Svartsengi á sama hraða og síðustu daga. Á meðan kvika heldur áfram að safnast eru líkur á öðru kvikuhlaupi, sem gæti endað með eldgosi. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn Almannavarna, segir ekki miklar líkur á að Grindvíkingar geti snúið heim fyrir jól. Arnar Björnsson ræddi við hann.
Hópur fólks sem mótmælti hernaði Ísraela á Gaza stráði rauðu glimmeri yfir Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra í dag, þegar hann hugðist halda ræðu á málþing í Veröld - húsi Vigdísar. Lögreglurannsókn fer fram á atvikinu, segir Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn í viðtali við Benedikt Sigurðsson.
Vinnslustöðin hefur fest kaup á þremur gámum búnum hollenskum tæknibúnaði sem breytir sjó í drykkjarvatn. Almannavarnir fá fyrsta gáminn svo hægt sé að tryggja vatn fyrir hitaveituna í Vestmannaeyjum. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir sagði frá.
Þúsundir söfnuðust saman í Dublin í dag til að votta írska lagahöfundinum Shane MacGowan virðingu sína. Hann lést í síðasta mánuði, sextíu og sex ára að aldri. Hestvagni með líkkistu MacGowans var ekið um borgina með lúðrasveit í broddi fylkingar. Valgerður Gréta Gröndal sagði frá.
Íþróttafólk frá Rússlandi og Belarús sem hefur náð lágmarki inn á Ólympíuleikana í París 2024 fær að keppa undir hlutlausum fána. Þetta hefur Alþjóðaólympíunefndin staðfest.
Anton Sveinn McKee, sundkapppi úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, er kominn í úrslit í 200 metra bringusundi á Evróumeistaramótinu í 25 metra laug.
Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknuimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir