Grindvíkingar geta vitjað heimila sinna frá og með morgundeginum. Reynt verður að koma öllum inn í bæinn á fyrstu þremur dögunum.
Starfsmenn Vísis fluttu afurðir og eina af átta vinnslulínum sínum frá Grindavík í dag. Hefja á saltfiskvinnslu í Helguvík til að bjarga páskasölunni.
Forsætisráðherra Palestínu segir ákvörðun ríkja að frysta framlög til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna koma á versta tíma fyrir almenna borgara á Gaza.
Félagsmálaráðherra telur að horfa þurfi í stórauknum mæli til þess hvað sé gert til að hjálpa innflytjendum og fólki sem hér fær vernd að aðlagast samfélaginu.