Fjölþátta ógnir steðja að Evrópu og truflanir í tölvukerfum víða um heim
Orkuöryggi og ógnir sem steðja að álfunnni úr austri voru meðal þess sem rætt var á fundi leiðtoga Evrópuríkja í Lundúnum.
Mistök í uppfærslu netöryggisbúnaðar gætu kostað fyrirtæki um allan heim milljarða dollara, að mati forstöðumanns netöryggissveitarinnar CERT-IS. Áhrif á íslensk fyrirtæki voru minni háttar.
Blaðamaður á Wall Street Journal, hefur verið dæmdur í sextán ára fangelsi í fyrir njósnir í Rússlandi.
Skipstjórnarmenn hjá Eimskipi og Samskipum felldu nýgerðan kjarasamning og hefur deilu þeirra verið vísað til ríkissáttasemjara.
Agnarsmá og herkæn köngurló á Madagaskar hefur verið nefnd eftir Vigdísi Finnbogadóttur.