Leit hætt á Breiðamerkurjökli, vopnaburður ungmenna og engin mannúðaraðstoð á Gaza
Leit var hætt síðdegis eftir að ljóst varð að enginn var eftir undir ísnum sem hrundi í Breiðamerkurjökli í gær. Upplýsingar frá fyrirtækinu sem sá um ferðina voru ónákvæmar.
Ungmenni grípa fyrr til ofbeldis en áður að mati lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Hún hefur miklar áhyggjur af þróuninni.
Mannúðaraðstoð Sameinuðu þjóðanna á Gaza féll niður í dag eftir að Ísraelsher fyrirskipaði rýmingu Deir al-Balah.
Mikil hætta er á grjóthruni á Siglufjarðarvegi um Almenninga. Vegurinn verður lokaður fram á miðvikudag.