Vandkvæði fósturforeldra, kakkalakkar, skilvirkt hraðaeftirlit og gallaður leikskóli
Fósturforeldrar hafa ekki aðgang að einkunnum og heilsufarsupplýsingum fósturbarna sinna, eftir breytingar í Þjóðskrá. Fósturfaðir segir kerfið vinna gegn börnunum.
Kakkalakkar sem fundust á Landspítalnum í sumarbyrjun reyndust afar harðsnúnir og voru þar enn um miðjan mánuð. Talsmaður Landspítalans vonast til að búið sé að farga þeim endanlega.
Meðalhraða-eftirlit hefur minnkað hraðakstur í Hvalfjarðargöngum um rúmlega áttatíu prósent. Að sögn yfirlögregluþjóns hefur óþarfa framúrkeyrslum þó fjölgað samhliða því að fleiri ökumenn aka langt undir leyfilegum hámarkshraða.
Endurbætur á leikskólanum Brákarborg, sem opnaði fyrir tveimur árum í nýju húsnæði, hlaupa sennilega á tugum milljóna. Sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg segir ljóst að pottur sé brotinn einhvers staðar í kerfinu.
Ný leitarvél er væntanleg frá fyrirtækinu á bak við gervigreindartólið Chat GPT. Sú gæti ógnað stöðu Google sem hefur verið vinsælasta leitarvél í heimi í að verða aldarfjórðung.