Milljónum rænt úr peningabíl, brú hrynur í Baltimore og Íslendingar í stuði fyrir úrslitaleik gegn Úkraínu
Vel á þriðja tug milljóna króna var stolið úr peningaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar í Hamraborg í Kópavogi. Verknaðurinn var þaulskipulagður og þjófanna er enn leitað.
Sex manna er saknað eftir að brú hrundi ofan í höfnina í Baltimore í Bandaríkjunum. Vélarvana flutningaskip sigldi á brúna með þessum afleiðingum.
Norðlendingar óttast að fækkun ferðamanna geti skaðað beint flug frá Evrópu til Akureyrar. Mikilvægt sé að efla markaðssetningu Akureyrarflugvallar.
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir í kvöld Úkraínu í hreinum úrslitaleik um hvort liðið kemst á Evrópumótið.