Fjórtán íslendingar eru í Freetown í Sierra Leone þar sem átök hafa geisað í dag. Allir eru óhultir en ein þeirra segir stöðuna óþægilega.
Sautján gíslum Hamas samtakanna var sleppt í dag. Meðal þeirra var fjögurra ára stúlka með ísraelskan og bandarískan ríkisborgararétt. Hún er fyrsti bandaríski gíslinn sem er sleppt.
Framkvæmdastjóri Þroskahjálpar segir alvarlegt að ófrjósemisaðgerðir hafi verið gerðar á fötluðum konum hér á landi án þeirra samþykkis. Þetta sé því miður ekki eina dæmið um að sjálfsákvörðunarréttur og grundvallarréttur fatlaðs fólks sé ekki virtur í kerfinu.
Formaður íbúasamtaka miðborgarinnar segist myndu fagna takmörkun á skammtímaleigu íbúða. Ásýnd miðborgarinnar hafi breyst með fjölgun leiguíbúða í skammtímaleigu.