Um 200 manns um íshellinn á dag, kostnaður við fangelsi rýkur upp, Zuckerberg sakar stjórnvöld um þrýsting
Ferðamálastjóri og framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segja það Vatnajökulsþjóðgarðs að svara því - af hverju fyrirtækjum var leyft að fara með ferðamenn í íshella að sumri - þrátt fyrir viðvaranir vísindamanna.
Að minnsta kosti tvö fyrirtæki fóru með ferðamenn að skoða íshellinn á Breiðamerkurjökli daginn sem banaslysið varð. Hátt í tvöhundruð manns heimsóttu íshellinn dag hvern.
Áætlaður kostnaður við nýtt fangelsi hefur á einu ári rokið upp um sjö milljarða króna. Úr sjö í fjórtán.
Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, gagnrýnir bandarísk stjórnvöld fyrir að þrýsta á um ritskoðun á miðlum fyrirtækisins þar sem fjallað var um Covid-19.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur farið í fimm útköll síðasta sólarhring. Miðað við annríki undanfarinna mánaða stefnir í metár hjá þyrlusveitinni.