Rússar heita hörðum viðbrögðum við innrás úkraínska hersins í Kúrsk-hérað. Hermenn Úkraínu eru komnir 30 kílómetra inn í landið.
Ekkert í íslensku lagaumhverfi gefur vísbendingu um hvernig eigi að bregðast við þegar fjöldi fólks býr langtímum annars staðar en það á lögheimili. Þetta segir formaður framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur.
Joe Biden segir Donald Trump vera ógn við öryggi Bandaríkjanna. Fyrsta viðtal við forsetann eftir að hann hætti við framboð var sýnt í dag.
Á Fljótsheiði í Þingeyjarsveit standa yfir rannsóknir og merkingar á álftum. Þar er við störf álftamerkingamaður til fjörutíu og þriggja ára sem þekkir álftirnar orðið vel.
Ferðalangar sem koma til Lofóten eyjanna í Noregi þurfa bráðum að greiða skatt sem fer í að fjármagna uppbyggingu innviða og þjónustu. Sívaxandi fjöldi ferðamanna hefur valdið álagi á samfélag eyjarskeggja.