Ráðherra gætti ekki meðalhófs, óeðlilegt að rukka, Gervi, Gerður, Una
Umboðsmaður Alþingis segir að matvælaráðherra hafi ekki gætt meðalhófs þegar hvalveiðar voru stöðvaðar í fyrra og að lagagrunn fyrir ákvörðuninni hafi skort. Ráðherra segir lögin úr sér gengin og niðurstaða umboðsmanns hafi ekki áhrif á stöðu hennar.
Innviðaráðherra segir óeðlilegt að leigusali rukki fyrir afnot af íbúð sem ekki sé hægt að dvelja í. Hátt í 200 fjölskyldur í Grindavík vantar enn varanlegt húsnæði.
Ný GPS-gögn, staðfesta að áfram dregur úr hraða á landrisi við Svartsengi. Vísindamenn telja enn líklegast, að ef af eldgosi verður, þá gjósi aftur í Sundhnúksgígum.
Farið var yfir hugmyndir verkalýðshreyfingarinnar um aðkomu stjórnvalda að kjarasamningum á fundi fulltrúa hennar og ríkisstjórnarinnar í dag.
Átök geisa enn í Úkraínu þar sem Rússar og Úkraínumenn skiptast á sprengidrónaárásum. Stjórnvöld í Kænugarði segjast hafa valdið skemmdum á loftvarnakerfi Rússa á Krímskaga.
Gervigreind er orð ársins 2023. Menningarviðurkenningar RÚV voru veittar í dag. Gerður Kristný hlaut viðurkenningu fyrir ritstörf og Una Torfa fyrir framúrskarandi tónlistarflutning