Almannavarnastig hækkað og verðbólga gæti ógnað kjarasamningum
Almannavarnastig hefur verið fært af óvissustigi upp á hættustig vegna kvikusöfnunar undir Svartsengi. Ríkislögreglustjóri ákvað þetta í dag í ljósi hættumats sem Veðurstofan gaf út í gær.
Allir eru að reyna að bjarga sínu með því að setja allar hækkanir út í verðlagið, segir forseti ASÍ; launafólk hafi misst trúna á því að efnahagsástandið batni.
Tilræðismaðurinn sem reyndi að myrða Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, kynnti sér meðal annars morðið á John F. Kennedy fyrir árásina.
Formaður atvinnuveganefndar selur ekki hlut sinn í Kjarnafæði Norðlenska. Lagabreyting sem hann beitti sér fyrir gerði söluna mögulega.
Lögmaður telur að nafnbreyting geti auðveldað brotamönnum að snúa aftur út í samfélagið eftir afplánun.
Ekki er vitað af hverju talsvert algengara er að kálfar fæðist dauðir hér en annars staðar í Evrópu. Bændur vona að ný rannsókn varpi ljósi á orsakir þess.