Fjórir hafa verið handteknir vegna gruns um manndráp í sumarhúsi í uppsveitum Árnessýslu. Karlmaður á fertugsaldri er látinn.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir núverandi viðbragð ráða við rýmingar ef til þess kemur vegna hættu á nýju eldgosi á Reykjanesskaga.
Mislingasmit hefur greinst í fullorðnum einstaklingi á Norðausturlandi. Smithætta er meðal óbólusettra í nánasta umhverfi mannsins.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti undir kvöld, eftir margra mánaða þref, fjárstuðning við Úkraínu sem jafngildir á níunda þúsund milljörðum íslenskra króna.
Formaður Framsóknarflokksins segir vonlausa aðferðarfræði hafa ríkt í útlendingamálum til þessa sem ríkissjóður líði fyrir.
Formaður Samfylkingarinnar varar flokksmenn við því að láta kæruleysi læðast upp að sér vegna góðs gengis í skoðanakönnunum. Hún boðar aðgerðir í atvinnu-, orku- og samgöngumálum.
Þúsundir komu saman á Kanaríeyjum í dag til að mótmæla fjölda ferðamanna.