Skortur á úrræðum fyrir börn í vanda í áratugi, kemur til greina að banna ferðir í íshella sumrin.
Mikið vantar upp á úrræði fyrir börn í vanda segir framkvæmdastjóri Geðhjálpar; algengt sé að börn fái ekki þá hjálp sem þau eigi að fá samkvæmt lögum.
Ferðamálastjóri telur hugsanlega tilefni til að banna íshellaferðir að sumarlagi en engin ákvörðun hafi verið tekin um slíkt.
Hátt í fjórtán þúsund lömb hafa í haust greinst með ARR-genið sem verndar gegn riðuveiki. Arfberar þess eru eftirsóttir til kynbóta og hefur fjölgað verulega frá því genið fannst fyrst fyrir rúmum tveimur árum.
Forstjóri Póstsins fékk símtal frá Fjármálaráðuneytinu í morgun vegna samstarf fyrirtækisins við Smáríkið sem selur áfengi í gegnum netið. Forstjóri Póstsins segir áfengissendingar eðlilegan hluta af þjónustu fyrirtækisins.
RÚV Orð, nýr vefur sem aðstoðar fólk við að læra íslensku, var opnaður í dag. Frönsk kona sem hefur notað vefinn segir hann hjálpa sér að skilja málið