Forvarnir ekki skilað árangri, árás á Poltava fordæmd, réttað yfir rusldrottningunni
Formaður Framsóknarflokksins segir ljóst að þjóðin sætti sig ekki við aukið ofbeldi og hnífaburð ungmenna. Forvarnir síðustu ára hafi ekki skilað árangri og bregðast þurfi skjótt við.
Fjöldi þjóðarleiðtoga fordæmir loftárás Rússa á úkraínsku borgina Poltava í dag þar sem yfir fimmtíu týndu lífi. Bandarísk stjórnvöld heita aukinni aðstoð við Úkraínuher.
Það er vænlegra til lengri tíma litið að hafa eina sterka fiskvinnslu á Bakkafirði en tvær vinnslur, að mati Byggðastofnunar. Fimm var sagt upp í þorpinu í gær.
Réttarhöld hófust í dag yfir sorphirðufyrirtæki sænsku rusldrottningarinnar. Fyrirtækið losaði sig við rusl og mengandi úrgang út í náttúruna, án þess að endurvinna hann.