2. júlí 2024
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að frekari aðgerða geti verið þörf í baráttu við verðbólgu en boðað aðhald í fjármálaáætlun sé í áttina.
Land rís nú hraðar á Reykjanesskaga en fyrir síðasta gos sem hófst í maí. Líkur eru á að gjósi eða kvika hlaupi fram í sumar.
Tveir til fjórir milljarðar tapast vegna búðahnupls á hverju ári.
Starfsemi í Kringlunni er að færast í samt horf eftir brunann í júní. Altjón varð í tíu búðum en enn er ekki ljóst hvert heildartjónið var.
Ákvörðun um refsingu Donalds Trumps vegna dóms fyrir mútugreiðslur sem féll í vor, verður að líkindum frestað.
Rekstur líkhúsa stendur illa og þótt leggja eigi á þjónustugjald dugir það ekki til að mati framkvæmdastjóra Kirkjugarða Akureyrar.
Kvöldfréttir útvarps