Hættustig aukið, almannavarnafundur um Grindavík, fleiri börn bíða eftir heilbrigðisþjónusut
26. febrúar 2024.
Fyrirvarar eldgosa við Grindavík gætu styst og færri jarðskjálftar mælst við upphaf eldgosa segir deildarstjóri eldvirkni hjá Veðurstofu Íslands. Hættustig er aukið á nokkrum svæðum í nýju hættumati.
Biðlisti hjá Geðheilsumiðstöð barna hefur tvöfaldast á síðustu tveimur árum og bíða nú vel á annað þúsund börn eftir greiningu á ADHD eða einhverfu.
Ungverska þingið samþykkti inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið síðdegis. Forsætisráðherra Svíþjóðar, fagnar niðurstöðunni og segir hana sögulega.
Stúlka sem er með afar sjaldgæfan taugasjúkdóm fær loks hjólastólahjól, fimm árum eftir að sjúkratryggingar höfnuðu fyrstu umsókn hennar.
Stuðningsmenn rússneska andófsmannsins Alexeis Navalnís segja að samkomulag um að skipta á frelsi hans og rússneskum njósnara í haldi í Berlín, hafi verið á lokametrunum þegar hann dó. Þeir saka stjórnvöld um að ráða Navalní bana.