Árásir í Íran, skjálftar, læknir í leyfi, loðna og Laufey Lín
3. janúar 2024
Mannskæðar sprengjuárásir sem framdar voru í Íran í dag eru fordæmdar víða um heim og yfirvöld í Íran heita hörðum viðbrögðum. Enginn hefur lýst sig ábyrgan fyrir árásinni, sem er sú mannskæðasta í Íran frá íslömsku byltingunni 1979.
Fulltrúar breiðfylkingar verkalýðsfélaganna og Samtaka atvinnulífsins segjast nálægt því að ná samkomulagi um launaliðinn í nýhöfnum kjaraviðræðum.
Hátt í 500 skjálftar hafa mælst við Trölladyngju nærri Kleifarvatni frá því að snarpur skjálfti varð þar á ellefta tímanum í morgun.
Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir er kominn í leyfi frá störfum við Landspítalann. Ástæðurnar tengjast plastbarkamálinu svokallaða.
Fjögur skip halda að líkindum til loðnurannsókna um miðjan janúar. Útgerðir loðnuskipa taka þátt í leiðangrinum og kostnaði við hann.
Og tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir hlaut íslensku bjartsýnisverðlaunin í dag. Lögum með henni er streymt um 150 milljón sinnum á mánuði á streymisveitum heimsins.