Ný skýrsla ríkislögreglustjóra segir helsta áhættuþátt peningaþvættis á Íslandi vera reiðufé. Mikil áhætta er einnig talin af sýndareignum líkt og rafmyntum.
Mál mannsins sem handtekinn var á aðfangadag verður líklega tekið fyrir af nefnd um eftirlit með störfum lögreglu segir formaður nefndarinnar.
Líkur á öðru eldgosi á Reykjanesskaga aukast með degi hverjum og líklegt að þar gjósi á næstu vikum. Jarðvísindamaður segir tilraunarinnar virði að reisa varnargarða utan um Grindavík, sé horft til fyrri gosa. Rætt við Magnús Tuma Guðmundsson
Leiðtogar Ísraels og forsvarsmenn hersins vara Hamas-liða við að átökin á Gaza eigi eftir að vara í marga mánuði. Talsmenn Ísraelshers segja nokkur vandkvæði fólgin í að koma neyðarvistum inn á Gaza, þar sem mannúðarkrísa ríkir. Á Austurvelli kom hópur flóttafólks saman til að þrýsta á um að ættingjar þeirra fái að koma til landsins á grundvelli fjölskyldusameiningar.
Bresk stjórnvöld eru hætt við áætlanir um að leggja metrakerfinu, vegna almennrar andstöðu.
Skíðafólk fjölmennti upp í Bláfjöll í dag þar sem veður og færð voru með besta móti. Framkvæmdastjórinn Magnús Árnason man varla eftir öðru eins, en talsverðar raðir mynduðust við lyftur og í miðasölu.