Þungfært er víða suðvestanlands og gul viðvörun í gildi á Suðurlandi fram á kvöld vegna snjókomu. Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Stríðið á Gaza á eftir að standa marga mánuði enn, segir yfirmaður ísraelska hersins. Sameinuðu þjóðirnar lýsa miklum áhyggjum yfir árásum á svæði þar sem almennir borgarar hafast við.
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar telur að allt að tíu þúsund færri ferðamenn séu hér á landi yfir hátíðirnar út af jarðhræringunum á Reykjanesskaga.
Tveir sóknarprestar hafa lýst yfir áhuga á að verða næsti biskup Þjóðkirkjunnar. Kosið verður í embættið í mars.
Tyrkir eru skrefi nær að samþykkja aðild Svía að Atlantshafsbandalaginu.