Kvikusöfnun á ný, skotárás í Prag, ítölsk stjórnvöld vilja helgileiki
Greinileg merki eru um að kvikusöfnun sé hafin að nýju undir Svartsengi. Halldór Geirsson dósent í jarðeðlisfræði bendir á að þetta sé í sjöunda sinn sem þensla mælist á Reykjanesskaga á undanförnum árum. Fólk þurfi að vera búið undir að kvika hlaupi að nýju.
Mikil eyðilegging varð hjá fiskeldisfyrirtæki í Grindavík í jarðhræringunum í nóvember. Tjónið hleypur á hundruðum milljóna króna.
Fimmtán eru látnir og á þriðja tug særðir eftir skotárás í háskóla í Prag síðdegis.
Davíð Arnórson býr og starfar í Prag. Hann var 200 metrum frá skólanum þegar árásin hófst og segir að það hafi verið átakanlegt að vera þar eftir árásina.
Ítölsk stjórnvöld vilja sekta skóla sem ekki setja upp helgileik fyrir jólin.
Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Magnús Þorsteinn Magnússon.