Landspítalanum hefur borist krafa um skaðabætur vegna dauða Andemariams Beyenes. Í hann var græddur plastbarki í Svíþjóð með aðkomu íslensks læknis.
Vísbendingar eru um að hægt hafi á landrisi í Svartsengi. Veðurstofa segir þó enn of snemmt að lýsa yfir að landris hafi stöðvast.
Langt er á milli flugvirkja og Samtaka atvinnulífsins í kjaradeildu þeirra. Enginn fundur hefur verið boðaður.
26 eru særðir, þar af 6 alvarlega, eftir að árásarmaður henti handsprengjum inn á bæjarráðsfund í Vestur-Úkraínu.
Fulltrúar ríkis og sveitarfélaga hafa samið um gamalt þrætuepli, fjármögnun á málaflokki fatlaðra.
Höfuðkúpan sem fannst undir gólffjölum í Ráðherrabústaðnum í haust er af Dana.
Kvöldfréttir útvarps