Verkfall flugumferðastjóra, Úkraína, nýju nöfnin Íviðja og Strympa
Boðað verkfall flugumferðarstjóra er ekki jólagjöfin sem íslenskur almenningur og atvinnulíf á skilið, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og líkir því við það að fá kartöflu í skóinn.
Verulega hefur dregið úr stuðningi vestrænna þjóða við Úkraínumenn vegna innrásar Rússa í landið.
Tryggja verður að fangelsun manna komi ekki í veg fyrir að þeir fái innlögn á geðdeild þegar þörf krefur, segir umboðsmaður Alþingis sem hefur skilað svartri skýrslu um starfsemi fangelsisins á Litla-Hrauni.
Forsvarsmaður undirskriftasöfnunar um að göng milli Seyðisfjarðar og Neskaupstaðar verði grafin á undan Fjarðar-heiðar-göngum hefur fengið yfir sig svívirðingar og orðið fyrir hrekkjum.
Mannanafnanefnd hefur birt úrskurði í fjórtán málum. Nú má heita Íviðja og Strympa.