Kosningar, leiðtogi Hamas drepinn, kvennaathvarf á Akureyri fær húsnæði, Grindavík og Stuðlar
Ríkisráðsfundur er að hefjast á Bessastöðum, beint streymi er frá honum á rúv.is
Landlæknir er á meðal þeirra fjölmörgu sem tilkynnt hafa framboð sitt til Alþingis í komandi kosningum. Þrír forsetaframbjóðendur eru líka í þeim hópi.
Ísraelsk yfirvöld staðfestu í dag að her landsins hefði drepið stjórnmálaleiðtoga Hamas í árás á Gaza í gær. Fráfall hans er mikið högg fyrir Hamas-samtökin
Nýtt húsnæði hefur verið fundið fyrir Kvennaathvarfið á Norðurlandi eftir langa leit og leigusamningur til þriggja ára verið undirritaður. Óvissan um framtíð athvarfsins er því úti, en það missir núverandi húsnæði um áramót.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum varar við hættum í Grindavík og nágrenni í tilefni þess að bærinn verður opnaður fyrir almennri umferð á mánudaginn.
Umboðsmaður barna telur alvarlega brotið á réttindum þeirra á meðferðarheimilinu Stuðlum, þar sem fjöldi barna með ólíkan vanda er vistaður saman.