Starfsstjórn, Play Air, verkföll kennara, sambandsleysi á Norðurlandi, dánaraðstoð í Bretlandi
Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra bæta við sig verkefnum ráðherra Vinstri grænna sem taka ekki sæti í starfsstjórn. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi sem lauk fyrir skömmu.
Flugfélagið Play ráðgerir miklar breytingar um mitt næsta ár og ætlar að leggja megináherslu á flug til sunnanverðrar Evrópu. Flugvélum hérlendis verður fækkað og þær verða leigðar út í gegnum flugrekstrarleyfi sem sótt verður um á Möltu.
Formaður Kennarasambandsins segir kennara hafa verið í fullum rétti til að boða til verkfalla, en Samband íslenskra sveitarfélaga hefur stefnt sambandinu fyrir félagsdóm.
Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra segir mjög alvarlegt að síma, net- og TETRA-talstöðvakerfið hafi legið niðrí samtímis í gær. Mikilvægt sé að tryggja að það endurtaki sig ekki.
Umdeilt frumvarp um dánaraðstoð var lagt fyrir breska þingið í morgun. Erkibiskupinn af Kantaraborg varar við að frelsi til að deyja geti hæglega orðið að skyldu til að deyja.