Mál Yazans, banaslys í Jökulsá á Dal, fellibylurinn Milton, Biden og Netanyahu ræða saman, kjaraviðræður og fjöldi opinberra starfsmanna
Félags- og vinnumarkaðsráðherra hringdi í ríkislögreglustjóra eftir að hann fór þess á leit við forsætisráðherra að brottflutningi hins palestínska Yazans Tamimi yrði frestað um miðjan síðasta mánuð.
Erlend kona á fertugsaldri sem var á ferðalagi hér á landi fannst látin eftir að hafa fallið í Jökulsá á Dal skömmu fyrir klukkan fimm í dag
Óttast er að yfir fjögurra metra há sjávarflóð gætu fylgt fellibylnum Milton sem á að skella á Flórída á næstu klukkustundum. Fréttastofa ræddi við Íslending sem býr á Flórída.
Forseti Bandaríkjanna og forsætisráðherra Ísraels ræddu saman í dag í fyrsta skipti í sjö vikur. Óvíst er um árangur af því símtali.
Opinberri heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta Íslands til Danmerkur lauk síðdegis í dag með móttöku á Norðatlantshafsbryggju í Kaupmannahöfn.
Fundi hjá ríkissáttasemjara í kjaraviðræðum Læknafélags Íslands við ríkið hefur verið frestað fram á mánudag. Fundur vegna kjaradeilu aðildarfélaga Kennarasambands Íslands við sveitarfélög og ríkið hófst klukkan hálf fjögur í dag, og stendur enn.