Hótar að leggja Líbanon í eyði, 50% vill flugvöll um kyrrt, samkomulag um handritin
Forsætisráðherra Ísraels hótar Líbönum því að landið verði lagt í eyði, rísi þeir ekki upp gegn Hezbolla. Það gæti tekið 15 ár að hreinsa upp rústirnar á Gaza eftir árásir Ísraelshers þar, að mati Sameinuðu þjóðanna.
Tæplega helmingur landsmanna er hlynntur því að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni, samkvæmt nýrri könnun. Þeim sem vilja flugvöllinn áfram þar hefur fækkað á undanförnum árum.
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Flórída vegna fellibylsins Miltons. Biden Bandaríkjaforseti, segir Milton verða versta fellibyl sem hefur skollið á ríkinu í mörg ár.
Samkomulag, sem á að liðka fyrir lánum á handritum á milli Danmerkur og Íslands var undirritað í Kaupmannahöfn í dag. Fleiri íslensk handrit í vörslu Dana gætu því komið tímabundið heim á næstu árum.
Minni skemmtiferðaskip sem sigla hringinn í kringum landið gætu beint viðskiptum annað á næsta ári, því til stendur að svipta þau tollfrelsi á Íslandi um áramót. Stjórnarformaður Cruise Iceland telur að þá myndu þau koma við á færri stöðum og kaupa kost og olíu í Færeyjum.