Ár frá árás Hamas á Ísrael, forseti Íslands í Danmörku og fjölmiðlanotkun barna og ungmenna
Víða um heim er minnst þeirra sem drepnir hafa verið í árásum Ísraela og Hamas eftir að átök þeirra á milli stigmögnuðust fyrir ári. Tala látinna nálgast 42 þúsund og enn eru um 100 manns í gíslingu á Gaza.
Stríðið fyrir botni Miðjarðarhafs hefur haft mikil áhrif á utanríkispólitík og aukið sundrungu á alþjóðaavettvangi; jafnvel á Norðurlöndum að dómi utanríkisráðherra.
Formaður Samfylkingarinnar telur Vinstri græn taka hag flokksins fram yfir hag þjóðar í ályktun helgarinnar um stjórnarsamstarfið. Formaður Flokks fólksins gagnrýnir að flokkur með þriggja prósetna fylgi fái að ráða hvenær er kosið.
Meirihluti nemenda á unglingastigi í grunnskólum sagðist helst nota TikTok til þess að sækja sér fréttir á netinu. Um helmingur framhaldsskólanema sækir fréttir þangað en flestir þeirra nota fréttamiðla á borð við vísi og mbl.is.
Forseti Íslands er kominn til Danmerkur í sína fyrstu opinberu heimsókn.