Ísraelsher undirbýr innrás í Líbanon, fjölga þarf þeim sem rannsaka vinnumansal og kostnaður forsetaframbjóðenda
Ísraelsher undirbýr innrás yfir landamærin til Líbanon. Þetta tilkynnti yfirmaður ísraelska heraflans í dag. Rúmlega 50 féllu í árásum Ísraels í dag. Hezbollah skutu eldflaugum í átt að Tel Aviv.
Þrír lögreglumenn rannsaka vinnumansal hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þyrftu að vera að minnsta kosti þrisvar sinnum fleiri. Þetta segir teymisstjóri á ákærusviði lögreglunnar.
Seðlabankinn hefur samþykkt kaup Landsbankans á TM.
Baráttan um Bessastaði kostaði forsetaframbjóðendurna nærri 200 milljónir króna. Katrín Jakobsdóttir fékk mesta styrki frá einstaklingum og Halla Tómasdóttir frá fyrirtækjum.
Reykjavíkurborg á í samræðum við Samhjálp um opnunartíma í vetur vegna heimilislausra.