Biðtími eftir þjónustu Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans hefur styst úr því að vera rúmt ár, niður í þrjá mánuði, vegna aukins fjármagns og skipulagsbreytinga.
Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi á morgun og á þriðjudag á Norður- og Austurlandi vegna norðanáttar og snjókomu. Búist er við samgöngutruflunum og bændur í Fljótsdal flýttu göngum til að koma fé af fjalli.
Borgarstjóri vill endurskoða lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar, meðal annars vegna aukins hnífaburðar.
Biblían er komin út á hljóðbókarformi. Stjórnarmaður í Hinu íslenska biblíufélagi fagnar því og segir að með minnkandi lestri hafi verið ákall eftir ritinu á hljóðbók.