Fatlaður maður í hjólastól sem býr á sambýli á vegum Reykjavíkurborgar hefur í tvígang slasast eftir fall. Borgin hefur vísað málinu til lögreglu.
Foreldrar ríflega sextíu barna í fyrsta bekk grunnskóla í Mosfellsbæ hafa óskað eftir aðstoð bæjaryfirvalda vegna eins foreldris sem hefur truflað eðlilegt skólastarf.
Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem lést eftir hnífaárás á Menningarnótt, var minnst í Lindakirkju í dag. Sóknarpresturinn segir mikilvægt að grípa börn sem líður illa og beina þeim á rétta braut.
Forstjórar leyniþjónustu Bandaríkjanna og Bretlands komu saman á ráðstefnu í fyrsta sinn í dag. Rússlandsforseti var í máli þeirra meðal annars sagður eineltisseggur.
Fylkir og Keflavík eru fallin úr Bestu deild kvenna í fótbolta.