Ný húsaleigulög, Rússar geta ekki lengur flutt gas um Úkraínu til Evrópu og haustlægð
Framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins óttast að framboð á leiguhúsnæði minnki til muna þegar ný húsaleigulög taka gildi um helgina. Vegið sé að eignarréttinum með lögunum.
Stjórnvöld í Úkraínu ætla ekki að endurnýja samning við Rússa sem heimilar gasflutning frá Rússlandi til Evrópu. Stjórnvöld í Kreml gagnrýna ákvörðunina og segja hana valda mikilli óvissu fyrir íbúa Evrópu.
Tveir farþegar hryggbrotnuðu í siglingu RIB bát í fyrra sumar, rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að hraði og aðbúnaður um borð hafi átt þátt í meiðslunum
Gular viðvaranir vegna talsverðrar eða mikillar rigningar taka gildi á öllu vestanverðu í fyrramálið og hætta er á skriðuföllum.
Ný tegund bættist í íslenska fánu fyrir nokkrum árum og hefur valdið vísindamönnum heilabrotum. Sæsnigill sem hlotið hefur íslenska heitið svartserkur á helst heimkynni við Kyrrahaf.