Máttur eldgossins á Reykjanesskaga hefur minnkað mjög. Mest virkni er fjarri innviðum. Margir vilja skoða gosið. Á annað hundrað bílum hefur verið lagt í vegkantinn á Grindavíkurvegi.
Hátt í fimmtíu manns á hálendinu hafa smitast af nóróveiru samkvæmt lögreglunni á Suðurlandi. Björgunarsveitir hafa aðstoðað við flytja fólkið á Hvolsvöll í allan dag.
Umtalsvert vatnstjón hefur orðið á Siglufirði í dag. Flætt hefur inn í mörg hús og slökkviliðið hefur varla undan að dæla úr húsum.
Búast má við löngum og erfiðum stjórnamyndunarviðræðum í Frakklandi, en Emmanuel Macron forseti fundaði í dag með leiðtogum mið- og vinstriflokkanna.