Deilur um efnistöku, kosningar í Bandaríkjunum, seinagangur í lögreglurannsókn og löng ganga í slagviðri
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er klofin í ákvörðun vegna leyfis til efnistöku í Búrfellshólma. Formaður úrskurðarnefndarinnar er ósammála ákvörðun nefndarinnar um að fella leyfið úr gildi.
Engin fíkniefni reyndust vera í hraðbát sem kom til Hafnar í Hornafirði í gær. Grunur um smygl vaknaði við tollskoðun bátsins.
Demókratinn Kamala Harris mælist með meira fylgi en Donald Trump fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjum í haust. Mikill viðsnúningur varð eftir að Joe Biden dró framboð sitt til baka.
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á netsölu á áfengi hófst fyrir um fjórum árum og stendur enn. Ríkissaksóknari krefur lögreglustjórann svara vegna seinagangs.
Makríll veiðist ágætlega í Síldsrsmugunni og er aftur farinn að láta á sér kræla undan Íslandsströndum.
Maður sem gekk heila nótt til að komast í skjól frá rigningu og slagviðri þegar vegurinn um Kaldalón í Ísafjarðardjúpi lokaðist vegna vatnavaxta telur að hann væri ekki til frásagnar hefði hann ekki haft vetrargalla og stígvél í skottinu á bílnum.