Minnst hundrað manns svelta til bana á degi hverjum í flóttamannabúðum í Darfurhéraði í Súdan. Um tíu milljónir eru á flótta í landinu.
Af átján tilmælum Greco, samtaka ríkja innan Evrópuráðsins sem starfa gegn spillingu, hafa íslensk stjórnvöld mætt níu að fullu. Siðfræðingur segir að ekki megi draga of miklar ályktanir af tölunum.
Ábyrgð samfélagsmiðla er mikil þegar kemur að upplýsingaóreiðu, að sögn fjölmiðlafræðings, og mikilvægi hefðbundinna fjölmiðla eykst að sama skapi.
Ísraelsstjórn afgreiddi á síðasta ári fleiri landtökubyggðir á Vesturbakkanum en nokkru sinni síðan Oslóarsamkomulagið var undirritað á tíunda áratugnum.
Nokkur ríki telja frambjóðanda stjórnarandstöðunnar vera réttmætan sigurvegara forsetakosninganna í Venesúela um síðustu helgi. Kjörstjórn hefur staðfest sigur Nicolas Maduro.
Tæplega eittþúsund hlauparar taka þátt í utanvegahlaupinu Súlur Vertical sem hófst Í Kjarnaskógi á Akureyri í dag.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn útsendingar: Erna Sóley Ásgrímsdóttir