Embættistaka forseta Íslands, þjóðarpúls Gallup, fangaskipti, skortur á malbiki og leirdúfuskotfimi á ÓL
Halla Tómasdóttir var sett í embætti forseta lýðveldisins í dag. Hún segist full þakklætis fyrir traustið og gerði andlega heilsu að umtalsefni í sínu fyrsta ávarpi.
Vinstri græn njóta stuðnings þriggja og hálfs prósents kjósenda í nýjum þjóðarpúlsi Gallup og mælast utan þings. Samfylkingin hefur enn mestan stuðning.
Fjölmargir fangar hafa fengið frelsi í fangaskiptum í Ankara í Tyrklandi, þeim umfangsmestu milli Rússlands og vestrænna ríkja eftir að kalda stríðinu lauk.
Gjaldkeri Sniglanna segir hundrað og þrjátíu milljarða króna vanta inn í vegakerfi landsins. Víða sé enn klæðning á vegum þar sem ætti að vera malbik.