Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, segir landsmönnum að búa sig undir krefjandi daga eftir árásir Ísraelshers í gærkvöldi. Tveir háttsettir leiðtogar Hamas- og Hezbollah-samtakanna voru drepnir í árásum í gær.
Breskur ferðaþjónustufrömuður sem hefur selt ferðir til Íslands í nær 50 ár segist ekki muna eftir öðru eins hruni í sölu ferða og núna.
Íslandsbanki gerir ráð fyrir því að hófleg hagvaxtarspá bankans frá í vor hafi verið fremur bjartsýn. Hagkerfið leitar nú í jafnvægi að undangenginni þenslu, að því er fram kemur í nýrri greiningu bankans.
Starfsfólk Alþingis hefur haft í nógu að snúast við að undirbúa innsetningu Höllu Tómasdóttur í embætti forseta Íslands.
Hátt í 80 kríuungar hafa drepist á Stafnesvegi það sem af er sumri. Bóndi á svæðinu hvetur bílstjóra til að hægja á sér.
Flest skip sem nú eru á makrílveiðum eiga í ákveðnu samstarfi hvert við annað, þvert á útgerðir.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir