Vonar að kaupin gagnist, tímamót á NATO fundi, riðu útrýmt innan 20 ára, sólarvörn úr sölu
Matvælaráðherra vonar að kaup Kaupfélags Skagfirðinga á stærsta kjötvinnslufyrirtæki landsins gagnist bæði neytendum og bændum. Stjórnvöld þurfi þó að hafa eftirlit með að lagabreytingar skili tilskildum árangri.
Utanríkisráðherra segir að tímasetning árása Rússa á Úkraínu í dag, daginn fyrir leiðtogafund NATO, séu varla tilviljun. Hún segir tímamótaákvarðana að vænta á fundinum.
Útrýma á riðuveiki í sauðfé innan tuttugu ára með því að leggja áherslu á ræktun verndandi arfgerða, í stað niðurskurðar, samkvæmt nýrri áætlun. Forstjóri Matvælastofnunar segir þetta sögulegar breytingar á gömlu kerfi.
Tvær tegundir sólarvarna sem teknar hafa verið úr sölu í Noregi vegna rangra upplýsinga um sólarvarnarstuðul fást á Íslandi. Umhverfisstofnun bíður nánari upplýsinga frá norskum yfirvöldum.