Verðbólgan erfið viðureignar áfram, fangelsi fyrir skotárás og reykingar á hjúkrunarheimilum
Kvöldfréttir 27. júní 2023
Fjármálaráðherra telur að það geti orðið erfiðara að draga úr verðbólgu á næstunni og stjórnvöld verði að vera aðhaldssöm í fjárlögum næstar árs.
Karlmaður á þrítugsaldri sem skaut að feðginum um jólin í fyrra hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi.
Umboðsmaður alþingis segist ekki geta gert athugasemdir við að sveitarfélög banni reykingar á íbúðaherbergjum á hjúkrunarheimilum. Þó verði að hafa í huga að herbergin séu heimili fólks.
Reisa á allt að 30 vindmyllur fyrir ofan Búrfellsvirkjun. Þær gætu framleitt 120 megavött af rafmagni eftir tæplega tvö ár. Verið er að kanna jarðlög þar sem reisa á myllurnar.
Hæstiréttur Bandaríkjanna ógilti í dag samkomulag við Sackler-fjölskylduna, eigendur lyfjarisans Purdue pharma, sem framleiðir ópíóíðalyfið oxycontin. Samkvæmt því áttu fjölsklydan að greiða skaðabætur en fá friðhelgi í staðinn.