Eldgosi að ljúka og engar vísbendingar um harðræði lögreglu
Nefnd um eftirlit með lögreglu segir engar vísbendingar um að lögreglan hafi farið offari í afskiptum sínum af mótmælendum að loknum ríkisstjórnarfundi í lok maí.
Eldgosinu við Sýlingarfell virðist vera að ljúka. Land rís hægar en áður undir Svartsengi. Rætt verður við framkvæmdastjóra útgerðarfélagsins Vísis síðar í Speglinum.
Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir karlmanni sem hleypti af haglabyssu inn á skemmtistaðnum Dubliners.
Fært er orðið að Landmannalaugum. Hálendisvegir norðanlands opna hins vegar seinna í sumar en venjulega vegna snjóa og bleytu.
Og nærri þrjátíu pör gengu í hnapphelduna hjá Siðmennt í dag, sér að kostnaðarlausu