Niðurrif í Grindavík, vantraust fellt, hergagnaflutningar og lundar í hættu
Altjón hefur verið skráð á fleiri en 60 húsum í Grindavík og þau þarf meira og minna að rífa. Undirbúningur fyrir niðurrif íþróttahúss bæjarins er hafinn.
Vantrauststillaga þingmanna Miðflokksins á Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra var felld í dag. Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks sat hjá, einn stjórnarliða og segir VG eiga takmarkað erindi á Alþingi.
Stjórnvöld í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hafa sammælst um að auðvelda hergagnaflutninga til Finnlands. Ástæðan er aukinn viðbúnaður Rússa á norðurslóðum.
Veitingamenn eru hvattir til að endurmeta hvort viðeigandi sé að bjóða upp á lunda, í ljósi slæmrar stöðu lundastofnsins. Veiðimenn eru beðnir um að sýna hófsemi.
Skíðað hefur verið á skíðasvæði Tindastóls í allan dag. Enn er snjór til heiða í Skagafirði eftir sumarhretið í byrjun mánaðar.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Anna Lilja Þórisdóttir