Ekki nýir varnargarðar innan við þá gömlu, vantrausttillaga að líkndum felld og hraðakstur á Reykjanesbraut
Ekki kemur til greina að reisa annan varnargarð fyrir innan þann sem nú stendur við Svartsengi. Kæling hraunsins hafði verið í skoðun í nokkurn tíma áður en gripið var til þess í gær.
Vantrauststillögu á matvælaráðherra er ætlað að sýna fram á klofning í ríkisstjórninni en búast má við því að hún verði felld, segir prófessor í stjórnmálafræði.
Mikill hraðakstur er um vinnusvæði á Reykjanesbraut að sögn verkstjóra. Atvinnubílstjórar aka hraðast, en erlendir ferðamenn fylgja hraðatakmörkunum.
Ríkið leggur mun meira fé í nýjan veg yfir Hornafjarðarfljót en reiknað var með og það er ein ástæða þess að ekki var hægt að klára samgönguáætlun segir formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.