Rútuslys á Öxnadalsheiði og síðasti hvalurinn ekki veiddur
Hópslysaáætlun var virkjuð laust fyrir klukkan fimm eftir alvarlegt rútuslys í Öxnadal. Tuttugu voru í rútunni. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni á vettvang.
Forstjóri Hvals segir síðasta hvalinn ekki hafa verið veiddan en sér ekki fram á að hefja hvalveiðar þetta sumarið.
Víetnamski kaupsýslumaðurinn Quang lé er laus úr gæsluvarðhaldi en hefur verið úrskurðaður í tólf vikna farbann.
Eldri ferðamenn fá ekki frítt í sund í Reykjavík gangi tillaga menningar-og íþróttasviðs eftir. Borgin telur sig verða af nærri tuttugu milljónum í tekjur
Evrópumótið í knattspyrnu hefst í kvöld með opnunarleik Þjóðverja og Skota