Sviknir sendlar, rannsókn hætt á Óshlíðarslysi, vetrarríki í Mývatnssveit
Sendlar hjá Wolt fá innan við þúsund krónur í vasann fyrir hverja sendingu, eftir að búið er að greiða skatta og gjöld af laununum. Það er fyrir utan kostnað við eigin bíl og bensín, sem þeir greiða sjálfir fyrir. ASÍ hvetur Wolt til að ganga frá kjarasamningi á Íslandi.
Ríkissaksóknari staðfesti ákvörðun lögreglunnar á Vestfjörðum um að hætta rannsókn á andláti manns í Óshlíð árið 1973. Saksóknari hafði áður fellt úr gildi fyrri ákvörðun lögreglu um að hætta rannsókn sama máls.
Dönsku konungshjónin hafa hætt við sína fyrstu opinberu heimsókn til Færeyja vegna verkfalla.
Vetrardekkin eru aftur komin undir tækin í áhaldahúsi Þingeyjarsveitar og þar hefur þurft að moka snjó mestalla vikuna. Sveitarstjórinn óttast að snjórinn verði lengi að fara.
Umboðsmaður Alþingis hefur sent Orkustofnun ábendingar og óskað eftir upplýsingum vegna málshraða og afgreiðslutíma hjá stofnuninni. Meðferð eins máls sem þangað rataði tók 26 mánuði.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Alexander Kristjánsson