Samstaða um útlendingafrumvarp, lögreglumaður dæmdur, kvikusöfnun og kakkalakkar
Full samstaða ríkti meðal þingmanna stjórnarflokkanna þegar útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra var afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis í morgun.
Forseti Bandaríkjanna kynnti í dag tilskipun sem ætlað er draga úr fjölda þeirra sem koma inn í landið. Samkvæmt henni geta ólöglegir innflytjendur ekki sótt um pólitískt hæli.
Landsamband lögreglumanna telur mikilvægt að almenningur fái skýr skilaboð um að lögreglan megi ekki brjóta af sér í starfi. Lögreglumaður var í gær dæmdur fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi.
Formaður félags fanga segir óásættanlegt að engin geðheilbrigðisþjónusta sé í fangelsum utan dagvinnutíma. Félagið býður heilbrigðisráðherra aðstoð til að bæta úr því.
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi. Dregið hefur úr krafti gossins.
Þýskættaðir kakkalakkar sáust á dögunum skjótast um ganga nýrnadeildar Landspítalans í Fossvogi. Meindýraeyðir var kallaður til.