Spennan eykst fyrir forsetakosningar og ráðherra vill skoða ákvarðanir lögreglu
Katrín Jakobsdóttir og Halla Tómasdóttir mælast með mest fylgi í síðasta Þjóðarpúlsi Gallups fyrir forsetakosningarnar á morgun. Síðustu kappræðurnar verða í kvöld.
Félagsmálaráðherra vill að forsætisráðuneytið fari yfir verkferla og ákvarðanir lögreglu, eftir að piparúða var beitt á mótmælendur, fyrir utan ríkisstjórnarfundinn í morgun.
Kynjafræðingur geldur varhug við því að einblína á þjóðerni eða trú gerenda og þolenda í kynbundnu ofbeldi, það geti dregið athygli frá ofbeldinu og æst upp kynþáttafordóma. Fjölskylda konu einnar frá Palestínu er ákærð fyrir ofbeldi í nánu sambandi.
Gasmengunar gæti orðið vart í Ölfusi og á höfuðborgarsvæðinu næstu daga. Almannavarnarstig hefur verið fært niður af neyðarstigi á hættustig.