Forsætisráðherra Ísraels segir árás á flóttamannabúðir í Rafah í nótt, þar sem á fimmta tug voru drepin, hafa verið hörmulegt slys. Árásin hefur vakið hörð viðbrögð.
Embætti landlæknis rannsakar andlát sjö vikna stúlku og hvort heilbrigðisþjónusta við hana hafi haft áhrif. Stúlkan lést skömmu eftir útskrift af Barnaspítalanum.
Hrossastóð á landspildu í Landeyjum var án vatns og illa haldið þegar komið var að því fyrir helgi. Fulltrúi MAST komst ekki til að athuga málið fyrr en í morgun. Dýraverndarsinnar gagnrýna hve seint var brugðist við.
Farið er að bera á eldsneytisskorti í Færeyjum og hillur í matvöruverslunum eru að tæmast vegna verkfalls sem hefur staðið í rúmar tvær vikur.