Ofbeldi í hafnarfirði, Palestína, kosningar í Bretlandi, lögreglumál og neftóbak
Faðir stúlku sem varð fyrir árás í Hafnarfirði í morgun er þakklátur fyrir að hafa rætt við dóttur sína um sambærileg ofbeldisbrot í Hafnarfirði fyrr í mánuðinum. Lögregla hefur til rannsóknar fjögur mál þar sem fullorðinn maður réðst að börnum í bænum.
Viðurkenning vestrænna ríkja á sjálfstæði Palestínu eykur friðarlíkur til lengri tíma litið, að mati alþjóðastjórnmálafræðings.
Verkamannaflokkurinn breski ætlar að setja fjölskyldur í öndvegi, komist hann til valda eftir þingkosningar í sumar. Atkvæði til Íhaldsflokksins þýði áframhaldandi ringulreið, segir formaður Verkamannaflokksins.
Formaður fjárlaganefndar segir að fjármagn til löggæslu hafi verið aukið síðustu ár. Lögreglumenn telja að tillögur í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar veiki stöðu lögreglu.
Blikur eru á lofti í rekstri ÁTVR. Sala á íslenska neftóbakinu hefur hríðfallið undanfarin ár. Haldi þessi þróun áfram er aðeins tímaspursmál hvenær framleiðslu þess verður hætt.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Anna Lilja Þórisdóttir