Quang Lé áfram í haldi, titringur í Napólí, mæla gegn kveisulyfi ungbarna
Quang Lé, kærasta hans og bróðir hafa verið úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald. Þremenningarnir hafa verið í haldi, frá aðgerðum lögreglu gegn viðskiptaveldi Quangs þann 5. mars. Þau eru meðal annars grunuð um mansal, peningaþvætti og skipulagða brotastarfsemi.
Framkæmdastjóri hjá Landsvirkjun telur mikilvægt að leggja áfram áherslu á langtímasamninga í orkusölu þrátt fyrir tilkomu opins raforkumarkaðar. Þannig megi best tryggja raforkuöryggi og samkeppnishæfni iðnaðar á Íslandi.
Meistaranemi í eldfjallafræði í Napólí segir eldgos við borgina geta haft mikil áhrif. Nokkuð sterkir jarðskjálftar urðu í öskjunni við Napolí í gærkvöld.
Lyfjastofnun mælir eindregið gegn notkun kveisulyfs sem íslenskir læknar hafa ávísað í áratugi. Ástæðan eru efasemdir um virkni og öryggi lyfsins.
Formaður samninganefndar ríkisins segir að kjaraviðræður við opinbera starfsmenn þokist í rétta átt. Formaður BSRB telur að hægt verði að ljúka samningum við nokkur aðildarfélög ef kraftur verður settur í viðræðurnar.