Á götunni í Bandaríkjunum eftir veikindi, tafir hjá Þórkötlu og rætt um brottvísanir á Alþingi
13. maí 2024
Ungur maður, sem veiktist af geðsjúkdómi á ferðalagi í Bandaríkjunum, er á götunni. Fjölskyldan fær enga aðstoð við að koma honum heim og óttast um líf hans.
Grindvíkingar telja seinagang hjá fasteignafélaginu Þórkötlu standa þeim fyrir þrifum við kaup á nýjum íbúðum. Þá hafi verið erfitt að fá upplýsingar um afgreiðslu mála hjá félaginu.
Útlendingastofnun hafnaði í dag beiðni nígerískrar konu um að fresta brottflutningi vegna veikinda. Dómsmálaráðherra segist hvorki mega né hafa forsendur til að breyta afgreiðslu einstakra mála; stjórnvöld voru sökuð um ómennsku á þingi í dag.
Fátt nýtt kom fram í vitnisburði Michaels Cohen, fyrrverandi lögmanns Donalds Trumps, í dag. Hann segist hafa hlýtt skipunum forstetans fyrrverandi og borið hag hans fyrir brjósti.